31.12.2013

Samningar um upp­gjör á milli Dróma, Eigna­safns Seðla­banka Ís­lands og Arion banka

Drómi gerir upp við Arion banka sem eignast einstaklingslán Dróma og Hildu

Samningar hafa náðst á milli Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. (ESÍ), Hildu ehf. sem er dótturfélag ESÍ, Dróma hf. (eignasafn SPRON og Frjálsa) og Arion banka hf. um yfirtöku ESÍ/Hildu á ákveðnum eignum og skuldum Dróma og uppgjöri á kröfu Arion banka á Dróma.

Skuld Dróma við Arion banka, sem í upphafi var tæpir 100 milljarðar króna, er komin til vegna ákvörðunar FME, frá 21. mars 2009, um að færa innlánsskuldbindingar SPRON yfir til Arion banka. Eignir SPRON, þ.m.t. útlán, voru settar í sérstakt félag, Dróma, og veðsettar Arion banka til tryggingar innlánsskuldinni. Skuldin greiðist að fullu upp með þeim eignum, m.a. einstaklingslánum Dróma og Hildu. Hilda mun eignast fyrirtækjalán og fullnustueignir Dróma. Samningarnir fela það í sér að ekki reynir á ábyrgð ríkissjóðs. Ennfremur flýta samningarnir fyrir lokum á slitameðferð SPRON.

Afhending eigna samkvæmt samningunum mun eiga sér stað á næstu vikum.

Af þessu tilefni segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri að þessir samningar séu enn einn áfanginn í uppbyggingu fjármálakerfisins í framhaldi af bankakreppunni.
„Samningarnir fela í sér að skuldir einstaklinga við Dróma munu færast til starfandi viðskiptabanka. Jafnframt eru samningarnir liður í endurheimtum krafna Seðlabanka Íslands á fallnar fjármálastofnanir, krafna sem eru vistaðar í ESÍ. Að baki samningunum liggur mikil vinna starfsliðs, stjórnar og ráðgjafa ESÍ sem þeim og viðsemjendum er hér með þakkað fyrir,“ segir seðlabankastjóri.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka segir af þessu tilefni:
„Það er ánægjuefni að samkomulag er í höfn. Við notum næstu daga og vikur til að fara yfir næstu skref í málinu. Þá erum við bæði að horfa til þátta sem tengjast starfsemi Dróma og þeim lánasöfnum sem bankinn hefur nú eignast. Það er þannig að gæði þessara lánasafna eru nokkuð misjöfn, að stórum hluta til eru þetta mjög góð lán en ljóst er að ákveðnir hlutar lánasafnanna þarfnast talsverðrar vinnu. Við munum leggja okkur fram um að byggja upp og efla viðskiptasambandið við þennan hóp á nýjum og betri grunni.“

Hlynur Jónsson, formaður slitastjórnar SPRON, segir af þessu tilefni:
„Það er slitastjórn SPRON fagnaðarefni að nú liggi fyrir jákvæð niðurstaða sem er stór áfangi í slitaferli SPRON og mun gera okkur kleift að ljúka slitunum fyrr en upphaflega var áætlað. Í niðurstöðunni felst að kröfuhafar fá greitt upp í almennar kröfur, fullnaðaruppgjör við Arion banka og ríkissjóður verður skaðlaus. Við þökkum starfsmönnum okkar fyrir sitt framlag til að ná þessum mikilvæga áfanga. Jafnframt færum við viðsemjendum okkar þakkir fyrir faglegt samningaferli þar sem einhugur ríkti um að leiða málið til farsælla lykta fyrir alla samningsaðila.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira