24.03.2011
Samstarf Arion banka og Fimleikasambands Íslands
Arion banki og Fimleikasamband Íslands undirrituðu styrktar- og auglýsingasamning á dögunum. Arion banki fagnar þessu samstarfi en hérlendis stunda um 8.500 manns fimleika, börn, unglingar og fullorðnir. Fimleikarnir hafa verið mjög í sókn síðustu árin og hafa Íslendingar náð framúrskarandi árangri á alþjóðlegum mótum.
Samningurinn er til eins árs og vænta báðir aðilar mikils af samstarfinu.
Frá undirritun samningsins, frá vinstri Dýri Kristjánsson frá FSÍ, Birna Rún Gísladóttir Arion banka, Þorgerður Diðriksdóttir formaður FSÍ og Dagný Jónsdóttir Arion banka.