31.03.2010
Séreignarsjóður Lífís sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum í dag
Séreignarsjóður Lífís sameinaðist Frjálsa lífeyrissjóðnum í dag. Við sameininguna fluttust eignir 286 sjóðfélaga í fjárfestingarleiðir Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Að mati Lífís var ekki hagkvæmt, eftir breytingar sem urðu á lögum og reglum um starfsemi séreignarsjóða, að reka sjóð af þeirri stærðargráðu sem sjóður Lífís var. Lagabreytingarnar fela í sér aukinn kostnað sem hefur bein neikvæð áhrif á eign sjóðfélaga. Í ljósi þessa leitaði Lífís til Frjálsa lífeyrissjóðsins um sameiningu sjóðanna. Sjóðfélagar Lífís hafa þegar fengið bréf þar sem nánar var farið yfir sameiningu sjóðanna.
Lífís, sem er vörumerki Líftryggingafélags Íslands hf., er í eigu Exista. Félagið veitir áfram þjónustu á sviði persónutrygginga og söfnunartrygginga.