21.05.2012
Sértryggð skuldabréf Arion banka, ARION CB 15, tekin til viðskipta í Kauphöllinni í dag
Sértryggð skuldabréf Arion banka hf., ARION CB 15, verða tekin til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf. í dag, 21. maí 2012. Skuldabréfin eru annar flokkurinn sem gefinn er út undir sértryggðum skuldabréfaramma Arion banka hf. dagsettu 9. febrúar 2012.
Heildarútgáfa skuldabréfaflokksins er 1.320.000.000 að nafnvirði, bréfin bera 6,50% óverðtryggða vexti og eru með lokagjalddaga 16. maí 2015.
Arion banki hf. hefur samið við MP banka hf. um viðskiptavakt með skuldabréfin. MP banki hf. mun daglega setja fram kaup- og sölutilboð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX Iceland hf. sem nema að lágmarki kr. 20.000.000 að nafnvirði á gengi sem MP banki ákveður í hvert skipti. Munur á kaup- og sölutilboði er að hámarki 1%. Heildarfjárhæð tilboða sem MP banki er skuldbundinn til að setja fram á degi hverjum er kr. 60.000.000.