22.02.2012
Sértryggð skuldabréf Arion banka tekin til viðskipta í Kauphöllinni í dag
Sértryggð skuldabréf Arion banka, Arion CBI 34, hafa í dag, 22. febrúar 2012, verið tekin til viðskipta á skuldabréfamarkaði NASDAQ OMX Iceland. Stærð flokksins er nú ISK 2.500.000.000. Flokkurinn ásamt sértryggða skuldabréfaprógramminu (e. Covered Bond Programme), sem hann er gefinn út undir, hafa verið skráð í kauphöllinni í Lúxemborg.
Eins og fram kom í tilkynningu bankans fyrr í vikunni lauk þessu fyrsta skuldabréfaútboði Arion banka síðastliðinn föstudag og var umframeftirspurn ríflega þreföld.