18.03.2011

SF1, félag í rekstri Stefn­is, trygg­ir fjármögnun á kaup­um á meiri­hluta Sjóvár

SF1, félag í rekstri Stefnis hf, dótturfélags Arion banka, hefur tryggt fjármögnun á kaupum á 52,4% af hlutafé í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. („Sjóvá“). Meðal helstu eigenda SF1 eru margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins.

Fjármögnunin er hluti kaupsamnings milli Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. („ESÍ“) og SF1 sem gerður var í lok söluferlis sem hófst í janúar á síðasta ári og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur haft umsjón með. Kaupsamningurinn er háður skilyrðum um tiltekin atriði, þ.á.m. samþykki Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og stjórnar ESÍ, en vonast er til að afhending geti átt sér stað innan þriggja mánaða.

Stefnir hf., sem leiddi kaupsamningsferlið fyrir hönd kaupanda, er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem rekur innlenda og alþjóðlega verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði fyrir einstaklinga og fagfjárfesta.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var meðal ráðgjafa kaupanda í ferlinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira