09.05.2009

SFF vek­ur at­hygli á breyt­ingum í net­bönk­um

Samtök fjármálafyrirtækja hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynningu.

SFF tilkynna um öryggisuppfærslu netbanka

Netbankar viðskiptabanka og sparisjóða verða uppfærðir samkvæmt nýjum öryggiskröfum mánudaginn 11. maí næstkomandi. Ný tegund spilliforrita á Netinu, svokölluð þriðja kynslóð Trojuhesta (e. man-in-the-browser Trojan), hefur undanfarna mánuði valdið usla víða um heim. Þessi tegund spilliforrita sækir aðgangsupplýsingar netbankanotenda í þeim tilgangi að misnota þær. Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) vöruðu við þessari tegund spilliforrita í fréttatilkynningu 15. apríl síðastliðinn.

Ljóst er að í mörgum tilvikum er öryggi í tölvum netnotenda ábótavant sem spilliforrit geta fært sér í nyt. Til að auka öryggi netbanka hafa fjármálafyrirtæki á Íslandi bætt við öryggisskrefi þar sem auðkennislykillinn gegnir veigamiklu hlutverki. Eftir uppfærslu netbankanna verður nauðsynlegt að staðfesta sérstaklega með auðkennislyklinum þegar millifært er á nýja viðtakendur eða á viðtakendur þar sem langt er frá síðustu millifærslu. Sé millifært aftur á viðtakanda sem hefur verið staðfestur með þessum hætti er ekki nauðsynlegt að endurtaka öryggisskrefið.

Af þessu tilefni vilja SFF jafnframt ítreka mikilvægi þess að tölvur netnotenda hafi viðurkennda vírusvörn og að stýrikerfi og önnur forrit séu ávallt með nýjustu uppfærslum.
Dæmi um forrit sem 3. kynslóð Trojuhesta hafa notað sem smitleið eru Adobe Acrobat, Apple Quick Time, Real Player og Java og því mikilvægt að uppfæra slík forrit þegar nýjar uppfærslur berast.
Á heimasíðu SFF má finna gátlista um gagnaöryggi á netinu með upplýsingum um hvað ber almennt að varast við netnotkun og meðferð aðgangsupplýsinga. Einnig er að finna góðar upplýsingar um netöryggi og öryggisprófanir á www.netoryggi.is.

Rétt er að árétta að íslensk fjármálafyrirtæki standa mjög framarlega á sviði netöryggismála og er sú vinna í stöðugri þróun undir forystu SFF. Ekkert fjárhagstjón hefur orðið hér á landi til þessa af völdum spilliforritsins.


Nánari upplýsingar veitir Daði Sverrisson hjá SFF í síma 8 200 404.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira