12.03.2010

Skatta­yfirlit í net­banka

Skattayfirlit fyrir árið 2009 er nú aðgengilegt í Netbanka Arion banka undir Yfirlit-Skattayfirlit. Sú breyting hefur verið gerð á lögum að nú er bönkum og sparisjóðum skylt að skila inn öllum framtalsgögnum viðskiptavina sinna til RSK. Því er ekki boðið upp á þann valmöguleika lengur að velja hvað af framtalsgögnunum er sent inn (lög nr. 46/2009 í 3. gr.).

Gögnin sem Arion banki hf skilar til RSK fyrir viðskiptavini sína koma fram á sundurliðunarblaði á svæði hvers og eins hjá RSK. Til þess að nálgast sundurliðunarblaðið þarf að skrá sig inn á framtalsvef RSK skattur.is og velja Framtal 2010. Þá birtist flipi, Sundurliðunarblað og þarf framteljandi að færa tölurnar inná framtalið sjálft.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira