09.10.2008
Skilaboð til viðskiptavina
Ágæti viðskiptavinur,
Starfsfólk Kaupþings leggur sig fram við að svara spurningum viðskiptavina fljótt og vel. Við núverandi aðstæður er mikið álag á starfsfólki og símkerfi bankans, því biðjum við viðskiptavini um að sýna þolinmæði og skilning.
Auk þjónustu sem við veitum í síma og útibúum bankans viljum við benda á að hægt er að senda fyrirspurnir (en ekki viðskiptabeiðnir) í tölvupósti á netfangið radgjof@kaupthing.is og munum við gera okkar besta til að svara þeim eins fljótt og auðið er.
Verðbréfasjóðir
Áframhaldandi frestun innlausnar
Þar sem lokað hefur verið fyrir öll viðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands mun frestun innlausnar hlutdeildarskírteina í eftirfarandi sjóðum gilda áfram:
Kaupþing Peningamarkaðssjóður
Kaupþing Skammtímasjóður
Kaupþing Hávaxtasjóður
Kaupthing Liquidity Fund EUR
Kaupthing Liquidity Fund USD
Kaupthing Liquidity Fund GBP
Kaupþing Heildarvísitölusjóður
Kaupþing Úrvalsvísitölusjóður
Kaupþing ÍS-15
Kaupþing ÍS-5 (fagfjárfestasjóður)
ICEQ verðbréfasjóður
Kaupþing Skuldabréf stutt
Kaupþing Skuldabréf millilöng
Kaupþing Skuldabréf löng
Kaupþing Erlend Skuldabréf
Kaupthing Scandinavian Fund
Kaupthing Green Growth
Kaupþing Erlend Hlutabréf
Kaupþing Verðbréfaval 1-5
Kaupþing Eignastýringarsjóður
Kaupþing Samval
Kjarabréf
Kaupthing Investment Funds - Icelandic Equity
Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina í ofangreinda sjóði, en þær verða ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju.
Hægt er að eiga viðskipti í Kaupþing Ríkisverðbréfasjóður langur og Kaupþing Ríkisverðbréfasjóður millilangur.
Þá hefur stjórn Kaupthing Manager Selection ákveðið frestun innlausnar með hlutdeildarskírteini KMS BRIC, KMS Global Equity, KMS Europe, KMS Emerging Markets.
Innlán
Eins og ítrekað hefur komið fram ábyrgist ríkissjóður allar innistæður á innlánsreikningum landsmanna. Innlánsreikningar Kaupþings eru:
Mx12 - verðtryggður
Mx12 - óverðtryggður
M2
Markaðsreikningur
Kostabók
Bústólpi 48
Bústólpi 60
Stjörnubók
Eignalífeyrisbók
Framtíðarbók
Krakkareikningur
Gjaldeyrisreikningur
VSK - reikningur
Höfuðstólstryggðir reikningar
Athugið að listinn er ekki tæmandi.
Lífeyrisafurðir Kaupþings
Frestun á gengisútreikningi og flutningum á séreign
Í ljósi þess að ekki eru viðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands er ekki hægt að reikna gengi fjárfestingarleiða lífeyrisafurða Kaupþings. Ekki er heldur hægt að framkvæma flutninga á milli fjárfestingarleiða til annarra vörsluaðila/lífeyrissjóða á meðan þetta ástand varir. Eftir að opnað verður fyrir viðskipti verður hægt að afgreiða flutningsbeiðnir.
Viðskiptavinir Kaupþings eru beðnir afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Starfsfólk Kaupþings