06.10.2010

Skipulags­breyt­ingar hjá Arion banka

Í nýrri stefnumótun Arion banka kemur fram að bankinn verður áfram alhliða banki með breitt þjónustuframboð þar sem áhersla verður lögð á skilvirka þjónustu og vel skilgreinda þjónustuþætti. Sérstök áhersla verður á hæfni bankans til að mæta þörfum þeirra viðskiptavina, einstaklinga sem fyrirtækja, sem þurfa víðtæka og fjölbreytta þjónustu. Samkeppnishæfni bankans verður efld með áherslu á skilvirkni og hagkvæmni í rekstri.

Í kjölfarið hefur verið ráðist í breytingar á skipulagi bankans. Breytingarnar miða að því að einfalda starfsemina og auka samvirkni á milli sviða.

Fjórir nýir framkvæmdastjórar hafa að undanförnu gengið til liðs við bankann:

Helgi Bjarnason tryggingastærðfræðingur, er nýr framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, sem er nýtt svið innan bankans. Undir rekstrarsvið falla upplýsinga- og tæknideild, viðskiptaumsjón og starfsmannahald. Helgi hefur áður starfað hjá Alþjóða líftryggingarfélaginu og nú síðast sem framkvæmdastjóri Sjóvá-Almennra líftrygginga og aðstoðarforstjóri Sjóvár.

Hermann Jónasson er nýr framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs, sem er nýtt svið innan bankans. Hermann er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hermann starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Tal (IP fjarskiptum ehf.) og þar áður hjá Landsbanka Íslands, fyrst sem forstöðumaður verðbréfaþjónustu og sérbankaþjónustu en síðar sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs.

Jónína S. Lárusdóttir er nýr framkvæmdastjóri lögfræðisviðs bankans. Jónína er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu frá London School of Economics and Political Science (LSE). Jónína var nú síðast ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Jónína mun hefja störf í bankanum 1. nóvember næstkomandi.

Stefán Pétursson er nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs, sem er breytt svið innan bankans. Undir fjármálasvið fellur reikningshald og fjárstýring. Stefán hefur starfað við ýmis stjórnunarstörf hjá Landsvirkjun og frá árinu 2002 var hann framkvæmdastjóri fjármálasviðs fyrirtækisins. Stefán er með MBA próf frá Babson College í Massachusetts og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.

Aðrir framkvæmdastjórar Arion banka eru:

Björk Þórarinsdóttir er framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og markaðsviðskipta. Björk er viðskiptafræðingur frá HÍ. Björk hóf störf hjá Búnaðarbanka Íslands árið 2001. Þar áður starfaði hún við störf tengd fjármálum í Bandaríkjunum, Þýskalandi og Frakklandi.

Gísli Óttarsson er framkvæmdastjóri áhættustýringar. Gísli er verkfræðingur frá Háskóla Íslands með doktorspróf frá University of Michigan. Gísli hóf fyrst störf í áhættustýringu Kaupþings í byrjun árs 2006. Fyrir þann tíma vann hann við gerð verkfræðihugbúnaðar í Bandaríkjunum.

Halldór Bjarkar Lúðvígsson er framkvæmdastjóri fyrirtækjalausna og fyrirtækjaráðgjafar. Halldór er verkfræðingur og tölvunarfræðingur frá HÍ. Halldór hóf störf hjá Kaupþingi árið 2005 en þar áður var hann í ýmsum stjórnunarstöðum, þar á meðal forstjóri Maritech.

Hermann Björnsson er framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs. Hermann er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hóf störf hjá Kaupþingi árið 2006. Þar áður gegndi hann í um 15 ár ýmsum stjórnunarstöðum hjá Íslandsbanka.

Margrét Sveinsdóttir er framkvæmdastjóri eignastýringar. Margrét er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA próf frá Babson College í Massachusetts. Margrét hóf störf hjá Arion banka árið 2009 en hún hefur yfir 20 ára reynslu á íslenskum fjármálamarkaði en Margrét var áður hjá Íslandsbanka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira