09.01.2009
Skjádagatal Kaupþings 2009
Skjádagatal Kaupþings 2009 er komið á vefinn. Eins og síðastliðið ár prýða ljósmyndir Þorvaldar Arnar Kristmundssonar dagatalið. Viðskiptavinir Kaupþings fá borðdagatalið sent heim á næstu dögum.
Í ár sýna ljósmyndir Þorvaldar náttúru Íslands og segir ljósmyndari um myndirnar:
„Stórbrotin veröld náttúru landsins endurspeglar öfl jarðarinnar. Hraunbreiður klæðast klæðum náttúrunnar, veðurbarnir jöklar og æðar lands í klettaborga óma um landsins sali. Náttúruöflin sverfa landið og móta eins og listamaður fullkomið myndverk. Verk sem aldrei lýkur, fegurð sem aldrei verður beisluð, Ísland."