24.07.2009
Skuldaaðlögun - nýtt úrræði ,,Komum málunum á hreyfingu"
Nýja Kaupþing hefur útfært nýja lausn fyrir þá viðskiptavini sem búa við skuld umfram greiðslugetu og markaðsvirði eignar.
Úrræðið kallast ,,Skuldaaðlögun“ og felur í sér að láni viðskiptavinar, að undangengnu greiðslumati, er breytt í nýtt verðtryggt langtímalán. Nýja lánið er til allt að 40 ára og að lágmarki 80% af markaðsvirði fasteignar. Á eftir nýja láninu verður útbúið tryggingarbréf sem nær upp í 110% af markaðsvirði eignarinnar. Eftirstöðvum upphaflega lánsins er breytt í biðlán án vaxta og verðbóta með einum gjalddaga eftir þrjú ár. Að þeim tíma liðnum verður staðan metin að nýju. Með úrræðinu eru lán löguð að greiðslugetu viðkomandi.
Þetta úrræði hentar fyrst og fremst þeim viðskiptavinum bankans sem búa við skuld umfram greiðslugetu og markaðsvirði eignar en hafa þó greiðslugetu af láni sem nemur að lágmarki 80% af markaðsvirði fasteignar.
Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings:
,,Nýja Kaupþing ætlar að vinna að endurreisn með heimilum og fyrirtækjum. Við bjóðum fjölbreytt úrræði fyrir viðskiptavini til að mæta mismunandi þörfum þeirra. ,,Skuldaaðlögun" er nýtt úrræði sem mun auðvelda mörgum fjölskyldum að komast út úr alvarlegum greiðsluvanda."
Dæmi um Skuldaaðlögun:
Núverandi staða
Áhvílandi er 27 m.kr. lán
Lánið er í dag í 135% veðhlutfalli og eigandinn ræður ekki við greiðslubyrðina
Skuldaaðlögun
Eign er að markaðsvirði 20 m.kr. í dag
Viðkomandi getur greitt af 16 m.kr. láni skv. greiðslumati (80% af markaðsvirði)
Lánað er nýtt 16 m.kr. verðtryggt langtímalán til 40 ára
Bankinn breytir hluta eldra láns í biðlán upp á 11 m.kr.
Útbúið er tryggingabréf að upphæð 6 m.kr.
Önnur helstu úrræði sem eru í boði hjá Nýja Kaupþingi vegna skuldavanda heimila eru:
Greiðslujöfnun
Breyting á lánaskilmálum
Tímabundin frestun afborgana
Lenging lánstíma