02.07.2013
Skuldabréf Arion banka í norskum krónum tekin til viðskipta í Kauphöllinni í Osló í dag
Skuldabréf Arion banka hf. í norskum krónum verða tekin til viðskipta í Kauphöllinni í Osló í dag, 2. júlí 2013.
Heildarútgáfa skuldabréfaflokksins er 500 milljónir norskra króna að nafnvirði (um 11,2 milljarðar íslenskra króna), bréfin bera fljótandi vexti 5,00% ofan á NIBOR og eru til þriggja ára með lokagjalddaga árið 2016.
Ísland er heimaríki Arion banka og Noregur er gistiríki bankans vegna þessarar útgáfu, sbr. 3. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.
Umsjónaraðili útgáfunnar er Pareto Öhman.
Útgáfan er sú fyrsta sinnar tegundar hjá íslensku fjármálafyrirtæki frá árinu 2007.