29.09.2011
Skýrsla greiningardeildar Arion banka um íbúðamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu
Greiningardeild Arion banka kynnti í dag skýrslu um íbúðamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu undir nafninu „Er pattstaða á fasteignamarkaði?“
Að mati greiningardeildar mun íbúðaverð hækka á næstu árum þrátt fyrir áframhaldandi slaka í hagkerfinu. Framboð næstu ára mun ekki halda í við eftirspurn þar sem nýbygging verður nær engin. Nýframkvæmdir munu aðeins hefjast þegar markaðsverð hefur hækkað í átt að byggingarkostnaði. Má því búast við skorti á íbúðum þegar líða tekur á árið 2013.