17.08.2009
Slitastjórn SPRON afnemur uppgreiðslugjöld lána tímabundið
Slitastjórn SPRON hefur tímabundið afnumið uppgreiðslugjöld á þeim lánum sem hafa borið slík gjöld. Uppgreiðslugjöldin hafa verið 1-2% af upphæð innborgunar. Nýi Kaupþing banki og skilanefnd SPRON sömdu fyrr á árinu að öll þjónusta og umsýsla vegna lána viðskiptavina SPRON skyldi vera innt af hendi af Nýja Kaupþingi banka.
Nýi Kaupþing banki hefur enn fremur bætt þjónustu sína í netbankanum þannig að nú geta viðskiptavinir sjálfir greitt inná höfuðstól lána án milligöngu þjónustufulltrúa.