27.12.2010
Söluferli Heklu á lokastigum
Arion banki í samstarfi við Volkswagen í Þýskalandi hefur ákveðið að ganga til samninga við Friðbert Friðbertsson og Franz Jezorski um sölu á bifreiðaumboðinu Heklu. Viljayfirlýsing þess efnis hefur verið undirrituð.
Í tilkynningu sem Arion banki sendi frá sér þann 16. september síðastliðinn og í auglýsingum sem birtar voru í kjölfarið, var bifreiðaumboðið Hekla auglýst til sölu. Tólf tilboð bárust bankanum og héldu fimm tilboðsgjafar áfram í söluferlinu. Í kjölfar þeirra viðræðna hefur verið ákveðið að ganga til formlegra samningaviðræðna við fyrrnefnda aðila um kaup þeirra á Heklu.
Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir á fyrstu vikum næsta árs.