21.04.2015

Sölu­gengi 6,80 krón­ur á hlut í út­boði Eikar fasteigna­félags

  • Sölugengi 6,80 krónur á hlut

  • 485 milljónir hluta seldir í útboðinu

  • Söluandvirði nemur um 3,3 milljörðum króna

  • Um 2.100 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf í Eik fasteignafélagi

  • Heildareftirspurn í útboðinu nam 8,3 milljörðum króna

  • Markaðsvirði hlutafjár Eikar fasteignafélags nemur um 23,6 milljörðum króna

  • Eindagi greiðsluseðla er 27. apríl 2015

  • Hlutabréf Eikar fasteignafélags verða skráð á Aðallista Nasdaq Iceland 29. apríl 2015

Vel heppnuðu hlutafjárútboði í Eik fasteignafélagi hf. lauk í gær þann 20. apríl þar sem um 2.100 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf fyrir samtals um 8,3 milljarða króna. Í útboðinu bauð Arion banki til sölu 485 milljónir hluta eða samtals 14,0% hlutafjár í félaginu í gegnum tvær tilboðsbækur, A og B. Heildarsöluandvirði útboðsins nemur 3,3 milljörðum króna á genginu 6,80 krónur á hlut. Markaðsvirði hlutafjár Eikar fasteignafélags er 23,6 milljarðar.

Samtals fengu um 1.200 fjárfestar úthlutað í báðum tilboðsbókum á genginu 6,80 krónur á hlut. Fjárfestum í tilboðsbók A verður úthlutað um 55% af áskrift, en þó þannig að áskriftir verða ekki skertar undir 500 þúsund krónur og lægri fjárhæðir standa óskertar. Áskriftir sem bárust á genginu 6,80 krónur á hlut eða hærra í tilboðsbók B verða óskertar.

Fjárfestum verða sendar upplýsingar um úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum eftir að Kauphöll Íslands hefur staðfest að hlutir í Eik fasteignafélagi hf. verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Gert er ráð fyrir að eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verði 27. apríl næstkomandi. Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingarbankasviðs Arion banka hefur umsjón með útboðinu og fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöll en áætlað er að miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi geti viðskipti hafist með hluti í Eik fasteignafélagi á Aðalmarkaði.

Heildarhlutafé Eikar fasteignafélags er 3.465.180.435 og er hver hlutur 1 kr. að nafnverði. Eik fasteignafélag á sjálft 8.800.000 hluti í félaginu.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags:

„Við þökkum það traust sem fjárfestar sýna félaginu sem fjárfestingarkosti og bjóðum nýja hluthafa velkomna. Eik fasteignafélag hefur vaxið á undanförnum árum með fjárfestingum í vel staðsettum eignum og markar skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland mikil tímamót fyrir félagið. Það verður spennandi að takast á við ný verkefni með breiðari hópi hluthafa.“

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Það er ánægjulegt hvað útboð Eikar fasteignafélags gekk vel. Eik fasteignafélag er eitt af stærstu fasteignafélögum landsins og verður góð viðbót inn á hlutabréfamarkaðinn. Skráning Eikar fasteignafélags á markað er önnur skráningin sem Arion banki hefur umsjón með á árinu, en bankinn hefur séð um rúmlega helming allra skráninga á hlutabréfamarkað frá árinu 2009. Það skiptir miklu að hlutabréfamarkaðurinn haldi áfram að vaxa og að fjárfestum bjóðist stöðugt fleiri fjárfestingarkostir.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira