18.11.2014

Spari­land – ný krakka­þjónusta Arion banka

Arion banki kynnir í dag Spariland, nýja krakkaþjónustu bankans. Spariland er ævintýralegur heimur þar sem hægt er að læra sitthvað um peninga og sparnað. Í Sparilandi búa verur eins og sparigrísir og sparifé. Þar er líka stórt fjall sem heitir Krónustapi og glitrandi tjörn sem heitir Silfra. Uppfinningastelpan Bíbí, leðurblökustrákurinn Blaki og fróðleiksfúsi apinn Ari búa í Sparilandi. Þar lenda þau í ýmsum ævintýrum og hjálpa krökkum að læra að fara vel með peninga.

Spariland er byggt á samstarfi Arion banka og Stofnunar um fjármálalæsi en Breki Karlsson, forstöðumaður stofnunarinnar, hefur lagt bankanum lið við að skapa heiminn með bætt fjármálalæsi að leiðarljósi. Breki leggur til fræðsluefni fyrir foreldra sem geta frætt börn sín á skemmtilegan hátt um fjármál á arionbanki.is/spariland. Auk þess mun Breki halda fræðslufundi um fjármál fyrir foreldra.

Við hönnun á Sparilandi og íbúum þess fékk Arion banki til liðs við sig íslenska hönnunarfyrirtækið Tulipop, sem stofnað var í byrjun árs 2010 af þeim Signýju Kolbeinsdóttur og Helgu Árnadóttur. Með því samstarfi vill bankinn styðja við íslenskt frumkvöðlastarf, hugvit og hönnun. Tulipop hannar allar gjafir krakkaþjónustunnar og er lögð rík áhersla á það að hanna vandaðar, fallegar og öruggar vörur sem framleiddar eru við góðar aðstæður.

Með nýrri krakkaþjónustu vill Arion banki vinna markvisst að því að efla fjármálalæsi íslenskra barna með því að kveikja áhuga þeirra á sparnaði með skemmtilegum ævintýraheimi og fallegum og vönduðum gjöfum. Einnig með því að leggja til fræðsluefni fyrir foreldra sem geta frætt börnin sín um fjármál.

Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi:

„Það er afar jákvætt að sjá hversu mikla áherslu Arion banki leggur á fræðslu fyrir foreldra og börn. Foreldrar fá þannig stuðning til að efla fjármálalæsi barna sinna. Í því skyni er um að gera að nýta sér þær stundir og spurningar sem koma upp þegar börnin fara að ferðast um Spariland.“

Signý Kolbeinsdóttir, annar stofnenda og yfirhönnuður Tulipop:

„Okkur hjá Tulipop fannst virkilega ánægjulegt þegar Arion banki leitaði til okkar með metnaðarfullt markmið um að skapa fallega og frumlega krakkalínu. Bankinn hefur verið að stuðla að aukinni fjármálafræðslu fyrir krakka og því fannst okkur borðleggjandi að byggja ævintýraheiminn Spariland á þeim grunni. Spariland hefur sterka vísun í fjármál og þar er meðal annars að finna örnefnin Gullfoss, Silfru og Peningagjá svo dæmi séu tekin. Við vonum að aðalpersónurnar í Sparilandi, þau Bíbí, Blaki og Ari, muni vekja lukku meðal íslenskra krakka og hjálpa þeim að læra að fara vel með peningana sína um leið.”

Meðfylgjandi eru myndir af íbúum Sparilands og kort af landinu.

Spariland kort

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira