03.04.2009

Spari­sjóður Mýra­sýslu sem­ur við stærstu lán­ar­drottna og sel­ur Nýja Kaupþingi all­ar eignir

Stærstu lánardrottnar Sparisjóðs Mýrasýslu „SPM“ samþykktu tillögu að fjárhagslegri endurskipulagningu SPM 27. mars síðastliðinn. SPM hafði í kjölfarið frumkvæði að því að ganga til samninga við Nýja Kaupþing. Það var gert til að tryggja áframhaldandi þjónustu við viðskiptavini sjóðsins og með hagsmuni samfélagsins í huga.

Á grundvelli samkomulagsins við stærstu lánardrottna hefur SPM selt eignir sínar til Nýja Kaupþings. Bankinn mun greiða fyrir eignirnar með skuldabréfi og útgáfu nýrra hluta í samræmi við þá tillögu sem stærstu lánardrottnar hafa samþykkt. Samhliða þessu eignast Nýja Kaupþing allt stofnfé í SPM. Samningurinn er háður endanlegu samþykki Fjármálaeftirlitsins.

Með kaupunum yfirtekur Nýja Kaupþing allar eignir og tilteknar skuldir SPM, þar með talin innlán, sem eru að fullu tryggð. Nýja Kaupþing tekur við rekstri afgreiðslu SPM í Borgarnesi. Stefnt er að sameiningu útibúa Nýja Kaupþings og SPM í Borgarnesi á næstu vikum. Bernhard Þór Bernhardsson sparisjóðsstjóri SPM tekur við sameinuðu útibúi SPM og Nýja Kaupþings.

Þessi lausn tryggir viðskiptavinum SPM óbreytta þjónustu.

Jafnframt mun Nýja Kaupþing eignast dótturfélög SPM, þar með talið Afl Sparisjóð og Sparisjóð Ólafsfjarðar. Stefnt er að rekstri þeirra í óbreyttri mynd.

Sparisjóður Mýrasýslu hefur átt í miklum fjárhagsörðugleikum undanfarin misseri. Með þessu næst farsæl lausn á vanda hans sem lánardrottnar, viðskiptavinir, starfsfólk og aðrir hagsmunaðilar geta verið sáttir við.

Þá er ekki lengur þörf á eiginfjárframlagi frá ríkissjóði eins og sparisjóðurinn hefur kost á samkvæmt neyðarlögunum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira