26.10.2012
Sprotaþing Íslands fór fram í Arion banka fyrr í dag
Sprotaþing Íslands (Seed Forum Iceland) var haldið í dag, í sextánda sinn, í höfuðstöðvum Arion banka en Arion banki er aðalbakhjarl Sprotaþingsins. Sprotaþing Íslands er viðburður þar sem fjárfestar geta kynnt sér helstu fjárfestingakosti úr frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi. Alls kynntu átta fyrirtæki viðskiptahugmynd sína fyrir fjárfestum á Sprotaþingi Íslands að þessu sinni og voru þau öll mjög ólík, en af þessum átta voru fimm íslensk. Auk þeirra komu fram fyrirlesarar frá Founders‘ Fund, Investinor og Beer and Partners.
Fyrirtækin sem kynntu sig í dag:
Meðfylgjandi eru myndir frá Sprotaþinginu.