01.12.2009

Staða banka­stjóra Arion banka verður aug­lýst til um­sókn­ar

Arion banki mun á næstu dögum verða fyrstur stóru viðskiptabankanna til að auglýsa stöðu bankastjóra lausa til umsóknar. Ráðningarsamningur Finns Sveinbjörnssonar bankastjóra er tímabundinn og rennur út næstkomandi áramót. Skilanefnd Kaupþings banka og Bankasýsla ríkisins hafa verið meðvituð um þetta í samningaviðræðum undangenginna mánaða.
Finnur hefur tilkynnt stjórn Arion banka og skilanefnd Kaupþings banka að hann muni ekki sækjast eftir starfinu að loknum ráðningartíma hans. Starfið verður því auglýst laust til umsóknar.

Það er mat stjórnar Arion banka og skilanefndar Kaupþings að með því að hafa þennan háttinn á við ráðningu nýs bankastjóra aukist traust viðskiptavina og kröfuhafa á bankanum og starfsemi hans.

Finnur Sveinbjörnsson:
„Það var ljóst þegar ég tók við bankastjórastarfinu fyrir rúmlega einu ári að hér yrði um tímabundið verkefni að ræða. Á þessu eina ári hefur bankinn lagað sig að nýjum veruleika eftir bankahrunið og tekist á við mörg flókin, erfið og umdeild verkefni. Stutt er síðan nýtt nafn bankans og stefnumótun voru kynnt og í dag fékkst langþráð niðurstaða um framtíðareignarhald bankans. Á þessum tímamótum er eðlilegt að nýr bankastjóri verði ráðinn.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira