11.01.2012

Stað­greiðsla af geng­is­hagn­aði inn­láns­reikninga í er­lendri mynt

Frá og með 1. janúar 2012 verður tekin staðgreiðsla af gengishagnaði sem myndast á innlánsreikningum í erlendri mynt, sbr. 4. grein laga nr. 94/1996 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur. Þetta á við um innlánsreikninga í eigu einstaklinga. Ekki verður tekin staðgreiðsla af gengishagnaði sem myndast á innlánsreikningum í eigu lögaðila.

Við úttekt af innlánsreikningum á þessu ári getur myndast gengishagnaður sem er staðgreiðsluskyldur og myndast þá jafnframt útborgunarfærsla samhliða úttektinni vegna ofangreindar staðgreiðslu. Útreikningur gengismunar miðast fyrst við innborganir gerðar frá og með 1. janúar 2010 eða stöðu reiknings þann dag. Gengishagnaður myndast þegar gengi úttektarfærslu er hærra en gengi innborgunarfærslu.

Gengismunur reiknast af fjárhæð úttektar hverju sinni og er fundinn með því að miða fyrst við mismun á gengi hennar og gengi elstu innborgunar, síðan næstelstu innborgunar og svo koll af kolli þar til fjárhæð úttektarinnar er náð. Úttekt tekur þannig fyrst mið af elstu innborgun, síðan af þeirri næstelstu o.s.frv. Gengishagnaður einnar úttektar getur þannig miðast við fleiri en eina innborgun og fleiri en eitt gengi.

Gengistap verður þegar gengi úttektarfærslu er lægra en gengi innborgunarfærslu.

Gengistapi má jafna á móti gengishagnaði innan árs, en ekki má jafna það á milli ára.

Gengistapi má ekki jafna á móti vöxtum til að lækka fjármagnstekjuskatt af vöxtum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira