20.12.2013

Stærri og öfl­ugri Stefn­ir-­SAM­VAL

Ákveðið hefur verið að sameina fjárfestingarsjóðina Stefni-Verðbréfaval 1 og Stefni-Verðbréfaval 2 við Stefni-Samval undir nafni þess síðastnefnda. Sameiningin miðast við 31. janúar 2014 en þann dag tekur Samval við öllum eignum og skuldbindingum Verðbréfavals 1 og 2, sem verður í kjölfarið slitið.

Við sameininguna eignast hlutdeildarskírteinishafar í Verðbréfavali 1 og 2 hlutdeildarskírteini í Samvali miðað við dagslokagengi sjóðanna 31. janúar 2014. Hlutdeildarskírteinishafar geta eftir sem áður átt viðskipti með hlutdeildarskírteini sín í Verðbréfavali 1 og 2 í samræmi við reglur sjóðanna fram til 20. janúar, en frá og með 1. febrúar 2014 fer um viðskiptin eftir reglum Samvals.

Ástæður sameiningar eru breyttar áherslur í framboði sjóða Stefnis til einstaklinga. Verðbréfavalssjóðirnir hafa minnkað á síðustu misserum en þeir voru upphaflega hluti af reglulegu sparnaðarleiðinni ÞEGAR, sem lögð var niður árið 2009. Á sama tíma hefur Stefnir-Samval stækkað og notið vinsælda einstaklinga og fyrirtækja, bæði sem bein fjárfesting og reglulegur sparnaður í mánaðarlegri áskrift.

Stefnir-Samval er eitt af flaggskipum Stefnis. Sjóðurinn var stofnaður árið 1996 og á sér langa og farsæla sögu. Yfir þrjúþúsund hlutdeildarskírteinishafar eru í sjóðnum og eru eignir hans liðlega 4,7 milljarðar. Hundruðir einstaklinga greiða mánaðarlegan sparnað í sjóðinn. Síðastliðin þrjú ár hefur árleg nafnávöxtun sjóðsins verið 16,3% á ári og síðastliðin fimm ár 15,9%. Ávöxtun sjóðsins á árinu 2013 m.v. 30. nóvember er 19,5%. Samval fjárfestir í þeim eignaflokkum sem þykja ákjósanlegastir á hverjum tíma, m.a. ríkisskuldabréfum, hlutabréfum og beint í félögum sem fyrirhugað er að skrá á hlutabréfamarkað. Fjárfest er í öðrum sjóðum til að auka áhættudreifingu. Vakin er sérstök athygli á að þóknun er lægri í Samvali en Verðbréfavali.

Eftir sameiningu verður Stefnir-Samval rúmlega 5 milljarðar að stærð og með tæplega 4000 hlutdeildarskírteinishafa innanborðs.

Verðbréfaþjónusta Arion banka er söluaðili sjóða Stefnis.

Nánari upplýsingar um Samval

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira