15.12.2009
Starfsfólk Arion banka gefur hjálparsamtökum matvæli og jólagjafir, bankinn gefur 5 milljónir króna
Undanfarna daga hefur starfsfólk Arion banka safnað hátt í hálfu tonni af margvíslegum matvælum til að gefa í sameiginlega jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar, Rauða krossins og Hjálparstarfs kirkjunnar. Stjórnendur bankans ákváðu jafnframt að leggja málefninu lið með fimm milljón króna peningagjöf í stað þess að senda viðskiptavinum bankans jólakort eða jólagjafir. Fulltrúar hjálparsamtakanna tóku á móti gjöfunum í dag 15. desember.
Á fjölskylduhátíð Arion banka, sem haldin var þann 5 desember lögðu starfsmenn bankans til jólagjafir sem sendar voru til úthlutunar í Mæðrastyrksnefnd. Þá hafa starfsmenn einnig styrkt nefndina sérstaklega með peningagjöfum.
Nánari upplýsingar veitir:
Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi Arion banka í síma 856-6127.