18.10.2013
Starfsfólk Arion banka safnaði 1,5 milljón fyrir Krabbameinsfélag Íslands
Konukvöld Arion banka var haldið í gærkvöldi í höfuðstöðvum bankans til styrktar báráttunni gegn krabbameini hjá konum, en söfnun til handa Krabbameinsfélagi Íslands hefur staðið yfir meðal starfsmanna bankans undanfarna viku. Söfnuninni er nú lokið og er orðið ljóst að heildarupphæðin nemur 1,5 milljón króna. Upphæðin mun renna óskipt til Krabbameinsfélags Íslands en Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, tók þátt í Konukvöldinu með kynsystrum sínum í bankanum í gær.
„Þetta framtak starfsfólks Arion banka er einstaklega hvetjandi fyrir okkur hjá Krabbameinsfélaginu. Við erum sannarlega þakklát fyrir fjárframlagið og munum nýta það eins vel og við getum. Á næstunni ætlum við að gera verulegar endurbætur á leit okkar að leghálskrabbameini og forstigum þess. Við ætlum að taka upp nýja tækni sem eykur gæði og öryggi mælinga og gefur einnig kost á að velja úr þær konur sem eru í meiri áhættu og þurfa að koma oft og reglulega og hinar sem þurfa jafnvel ekki að koma. Þangað fer þessi styrkur frá starfsfólki bankans, til hagsbóta fyrir báða hópana.“
Hátt í 300 konur komu á Konukvöldið þar sem meðal annars var boðið upp á tískusýningu og sáu konurnar í bankanum um að sýna fatnað frá Ellu, Tuzzi og Eggerti feldskera. Fjölmörg fyrirtæki og listamenn gáfu verðlaun í happdrætti sem var hluti af fjáröfluninni til styrktar Krabbameinsfélaginu og þar að auki var haldið uppboð á nokkrum hlutum en allur ágóði þess rann í söfnunina. Karlmennirnir í bankanum sáu um öll þjónustuhlutverk kvöldsins sem fólu m.a. í sér veislustjórn, móttöku, uppfart, tónlistarspilun og útdrátt í happdrættinu.
Meðfylgjandi myndir eru frá Konukvöldi Arion banka sem haldið var 17. október í höfuðstöðvum Arion banka.