11.03.2011
Starfsfólk Arion banka vann Mottumarskeppnina í fyrra - bankinn er stoltur bakhjarl átaksins
Arion banki er einn af stærstu styrktaraðilum átaksins „Mottumars“ sem Krabbameinsfélag Íslands stendur fyrir dagana 1. – 31. mars. Átakið skiptist í tvennt: Mottumars - almennt átak þar sem karlmenn landsins eru hvattir til að safna mottu og liða- og einstaklingskeppni.
Arion banki hefur stutt vel við bakið á Krabbameinsfélagi Íslands um áraraðir og tekur nú aftur þátt í Mottumars. Í fyrra, auk þess að vera bakhjarl átaksins, tók starfsfólk bankans liðakeppnina með áhlaupi og vann hana með glæsibrag með því að safna dágóðri upphæð og flottum mottum.
Arion banki hvetur alla, konur sem karla, til að fara inn á heimasíðu átaksins www.mottumars.is, styrkja gott málefni og fræðast um karlmenn og krabbamein.