24.11.2009
Starfsfólk gefur til Mæðrastyrksnefndar
Starfsfólk Arion banka í Garðabæ svaraði kalli Mæðrastyrksnefndar þar sem óskað var eftir vettlingum. „Takið þátt og gefið fallega vettlinga svo engum litlum barnafingrum þurfi að vera kalt í vetur.“ Söfnunarkassar eru í öllum Eymundsson verslunum.
Starfsfólkið lagði önnur prjónaverkefni til hliðar á meðan setið var við að prjóna vettlinga í öllum kaffi- og matartímum.
Afraksturinn er eins og sjá má á myndunum glæsilegur og farið var með hann í Eymundsson í Smáralind síðasta föstudag, þar sem söfnunarkassinn varð skyndilega yfirfullur.
Arion banki gefur endurskinsmerki með hverju pari.
Ef myndirnar eru skoðaðar nánar þá er eins og nýja merki bankans sé á einu parinu.