04.09.2009
Starfsfólk Nýja Kaupþings leggur krabbameinssjúkum börnum lið
Gríðarlega góð þátttaka hefur verið hjá starfsmönnum bankans í átakinu Á allra vörum sem safnar fyrir hvíldarheimili fyrir krabbameinssjúk börn.
Á aðeins einni viku safnaðist rúm ein milljón króna en hverjum og einum býðst að leggja til kr.1.250 eða meira og fá gloss í staðinn. Bankinn greiðir mótframlag að upphæð kr. 1.250.
Tæplega helmingur starfsmanna hefur þegar tekið þátt í átakinu og er hlutfall karla og kvenna svipað. Þátttakan var það góð að ekki er til gloss handa öllum en það kemur vonandi ekki að sök því málstaðurinn er það sem skiptir öllu máli.