05.06.2009
Starfsfólki fjármálafyrirtækja hefur fækkað um tæpan fjórðung frá 2007
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa birt frétt á heimasíðu sinni þar sem kemur fram að starfsfólki fjármálafyrirtækja fækkaði um 13% frá árinu 2007 til ársloka 2008 en um tæpan fjórðung frá árinu 2007 til loka 1. ársfjórðungs 2009. Eingöngu eru taldir starfsmenn sem eru virkir í starfi og ekki í langtímaleyfi eða fæðingarorlofi. Ekki eru taldir með starfsmenn í ræstingu eða mötuneyti.
Gögnin um starfsmannahald ná til allra aðildarfélaga SFF. Markmiðið er að safna upplýsingum ársfjórðungslega um fjölda virkra starfsmanna, greidd stöðugildi og aldursskiptingu starfsfólks og birta á vef samtakanna.
Starfsmannafjöldi aðildarfélaga SFF 2007-2009
2007
2008
Q1 2009
Greidd stöðugildi
5974
5192
4506