26.03.2010
Starfsmenn Arion banka báru sigur úr bítum
Liðakeppni Krabbameinsfélags Íslands í Mottu-mars:
Hart var barist í liðakeppni Mottu-mars en lokað var fyrir söfnun áheita kl. 14:00 í gær. Örar sviptingar voru í toppsætunum en sigurlið Arion banka skaust upp fyrir lið Actavis ONE á bókstaflega síðustu mínútu og safnaði einni og hálfri milljón króna, en þriðja sætið hnepptu Innnes mottur.
Gríðarleg þátttaka hefur verið í vefleik Krabbameinsfélagsins en alls skráðu yfir 2.400 menn sig í einstaklingskeppnina og tæp 500 lið, og söfnuðu þessir aðilar 26.033.833 krónum til styrktar átakinu Karlmenn og krabbamein: Mottu-mars. „Það hefur verið gríðarlega mikil stemming meðal okkar manna hér í Arion banka, en yfir hundrað karlmenn hafa tekið þátt í átakinu og skartað glæsilegum mottum sl. vikur. Þá er ótalinn stuðningur þeirra sem kyns síns vegna hefur ekki getað látið sér vaxa grön. Þar sem Arion banki er bakhjarl átaksins fannst okkur mikilvægt að taka þetta alla leið og sigur var það eina sem kom til greina. Þetta sýnir að þegar allir leggjast á eitt er allt mögulegt,“ segir Einar Þór Einarsson sem valinn var „duglegasta mottan“ hjá Arion banka.
„Mottukeppnin hefur farið fram úr okkar björtustu vonum, bæði hvað fjölda þátttakenda varðar sem og upphæð söfnunar,“ segir Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands. „Liðakeppnin hefur verið sérlega hörð og greinilegt að keppnisandinn er ríkur. Fyrirtækin hafa mörg hver stutt við bak starfsmannahópa sinna og mikil samstaða hefur einkennt allt ferlið. Við karlmenn höfum hér með sýnt að við getum svo sannarlega snúið bökum saman en aukin árvekni getur bjargað fjölda mannslífa.“
Efstu 5 í einstaklingskeppni keppa um titil Mottumeistara í beinni útsendingu
Það er svo íslenska þjóðin sem velur Mottumeistara Krabbameinsfélagsins árið 2010 með símakosningu í söfnunarþætti Stöðvar 2 í kvöld, en valið stendur milli efstu fimm keppanda í einstaklingshluta Mottu-mars:
Rúnar Sigurðsson
Sveinn Magni Jensson
Hinrik Greipsson
Hilmar Harðarson
Guðlaugur V. Antonsson
Margir af helstu skemmtikröftum landsins koma við sögu í þættinum sem verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá svo þjóðin öll geti fylgst með og tekið þátt í lokaátakinu.