18.12.2012

Starfs­menn Arion banka syngja til styrkt­ar Geð­hjálp

Arion banka barst áskorun um að taka þátt í jólalagakeppninni Geðveik jól í ár og styrkja þannig Geðhjálp. Þessu skemmtilega verkefni var því hrundið af stað í byrjun nóvembermánaðar. Ákveðið var að taka íslenskt lag og setja það í jólabúning og stóð ekki á strákunum í Jeff Who? sem lánuðu okkur lagið Barfly fyrir keppnina. Í okkar búning fékk lagið titilinn „Höldum geðveik jól“.

Með aðstoð fjölda starfsmanna ásamt nokkurra utanaðkomandi aðila s.s. framleiðslufyrirtækisins Tjarnargötu, Kex hostel og fleiri tókum við upp jólaútgáfu af Barfly og gerðum við það tónlistarmyndband. Annar aðalsöngvari lagsins; Hjalti Már Hauksson, hreppti fyrsta sætið í söngvakeppni bankans sem haldin var í vor en hinn, Rúnar Magni Jónsson, vann keppnina fyrir fimm árum síðan. Það var svo Margrét Bragadóttir, sem starfar á fyrirtækjasviði, sem samdi textann við lagið sem var svo feykivinsælt árið 2005.

Það fyrirtæki sem nær að safna hæstri upphæð fyrir Geðhjálp vinnur keppnina en henni lýkur kl. 16 miðvikudaginn 19. desember. Við bendum fólki á að kynna sér keppnina á gedveikjol.is, kjósa sitt uppáhaldslag og styrkja verðugt málefni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira