12.06.2012
Starfsmenn Arion banka útskrifast sem vottaðir fjármálaráðgjafar
Fimmtudaginn 7. júní sl. fór fram útskrift úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa. 27 starfsmenn fjármálafyrirtækja útskrifuðust úr náminu, þar af 10 starfsmenn Arion banka.
Markmið vottunarinnar er að samræma þær kröfur sem eru gerðar til fjármálaráðgjafa og tryggja að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Þetta er í fyrsta sinn sem að starfsmenn í einstaklingsráðgjöf á fjármálamarkaði fá slíka vottun.
Námið spannar þætti fjármálamarkaðar og þjóðhagfræði auk lögfræði og siðfræði. Einnig fengu nemendur þjálfun í almennri ráðgjafafærni. Náminu lauk með prófum sem staðfesta færni þátttakenda.
Samtök fjármálafyrirtækja standa að verkefninu um vottun fjármálráðgjafa, ásamt efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, Samtökum starfsfólks fjármálafyrirtækja, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst.