11.06.2013
Starfsmenn söfnuðu 800 kílóum af fötum fyrir Rauða krossinn
Í byrjun maímánaðar stóðu starfsmenn Arion banka fyrir fatasöfnun til handa Rauða krossinum annað árið í röð. Söfnunin gekk vel og safnaðist um þriðjungi meira í ár en í fyrra eða um 800 kíló.
„Fatasöfnunin er eitt mikilvægasta fjáröflunarverkefni Rauða krossins, en er ekki síður ómetanlegt umhverfisverkefni. Árlega eru um þúsund tonn af vefnaðarvöru urðuð að óþörfu hérlendis. Öllu þessu væri hægt að koma í endursölu og -vinnslu og skapa um leið tekjur fyrir hjálparstarf Rauða krossins,“ segir Örn Ragnarsson, verkefnisstjóri Fatasöfnunar. „Það er mikils virði þegar fyrirtæki taka höndum saman eins og Arion banki til að styðja starf Rauða krossins með þessum hætti.“
Fötin sem söfnuðust í vor munu nú öðlast nýtt líf jafnt hér á Íslandi sem erlendis því Rauði krossinn nýtir allan fatnað sem hann fær. Sumt er selt úr landi og ágóðinn rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins, annað er flokkað og gefið þurfandi á Íslandi sem og erlendis eða selt í fataverslunum Rauða krossins.