18.12.2013

Startup Energy Reykja­vík - Fjárfest í sprot­um í orku­tengd­um iðn­aði og þjónustu

Á félagsfundi Íslenska jarðvarmaklasans (Iceland Geothermal) í gær var tilkynnt um stofnun nýrrar viðskiptasmiðju fyrir verkefni og fyrirtæki í orkutengdum iðnaði og þjónustu, Startup Energy Reykjavík (SER), www.startupenergyreykjavik.com.

Um Startup Energy Reykjavík

Arion banki, Landsvirkjun, GEORG og Nýsköpunarmiðstöð hafa sammælst um að styðja við sprota í orkutengdum iðnaði. Aðilar verkefnisins eru sammála um að mikil tækifæri felist í aukinni verðmætasköpun í orkutengdum iðnaði og þjónustu. Með það í huga hafa þeir sameinast um að koma á fót viðskiptasmiðju þar sem fjárfest verður í og stutt við valdar viðskiptahugmyndir á þessu sviði.

Skipulag og framkvæmd viðskiptasmiðjunnar verður í höndum Klak Innovit og Iceland Geothermal.

Verkefninu verður hleypt af stokkunum upp úr miðjum mars 2014 og stendur í um 10 vikur en fjárfest verður í allt að 7 fyrirtækjum árið 2014 og annað eins 2015. Auk fjárfestingarinnar fá þátttakendur aðstoð við að koma viðskiptahugmynd sinni eins og langt og mögulegt er á 10 vikum. Á lokadegi SER 2014 verður haldinn fjárfestadagur þar sem fyrirtækin fá tækifæri til að kynna hugmyndar sínar fyrir fjárfestum.

50 manna hópur úr vísinda-, viðskipta- og athafnalífinu mun leiðbeina teymunum jafnt og þétt á þessu 10 vikna tímabili og mun þessi hópur koma bæði frá þeim fyrirtækjum sem að SER standa sem og annars staðar að úr atvinnulífinu. Teymin munu hafa aðstöðu í Háskólanum í Reykjavík á meðan verkefninu stendur.

Skipulag SER er byggt á góðri reynslu frá Startup Reykjavík sem fór fram árið 2012 og 2013, en í gegnum það verkefni hefur Arion banki nú þegar fjárfest í 20 íslenskum sprotafyrirtækjum. Reynslan hefur sýnt að fyrirkomulagið hentar vel til þess að efla og undirbúa fyrirtæki sem eru að taka sín fyrstu skref í mótun og framkvæmd viðskiptahugmynda.

Mikil gróska í nýsköpunarumhverfinu

Síðustu misseri hefur mikil gróska átt sér stað í nýsköpunarumhverfinu hér á landi. Fjölmargir sprotar úr ýmsum geirum atvinnulífsins hafa sprottið fram, vaxið og dafnað.

Ísland er ríkt af orkuauðlindum og því felast miklir möguleikar í aukinni verðmætasköpun í íslensku samfélagi með því að styðja við nýsköpun á því sviði. Í gegnum verkefni eins og SER geta komið fram fyrirtæki þar sem íslenskt hugvit er nýtt til þróunar á nýjum hugmyndum eða nýrri tækni til vinnslu eða nýtingar orku og ef vel tekst til verða til afurðir til nýtingar á Íslandi sem og víðar.

Kynningarfundur og umsóknarferli

Kynningarfundur um Startup Energy Reykjavík verður haldinn þann 16. janúar 2014 kl 12:00 í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni 19. Opnað verður fyrir umsóknir sama dag á www.startupenergyreykjavik.com.

Hverjir eiga að sækja um?

Frumkvöðlar og verkefni sem telja að þau hafi upp á að bjóða vörur tengdum orkuiðnaðinum. Dæmi um starfsemi sem eiga gott erindi í Startup Energy Reykjavík er ýmis konar sérfræðiþjónusta, vélar, búnaður, viðhaldsþjónusta og hugbúnaður. Fyrirtæki á öllum stigum virðiskeðjunnar (framleiðsla, orkubreyting, dreifing, smásala) eiga erindi í SER.

Eftir hverju er leitað?

Varan eða þjónustan skal eiga erindi á alþjóðamarkað með skýran markhóp. Æskilegt er að verkefnið sé vel skalanlegt með tilliti til tekna. Eingöngu er horft á lausnir fyrir orkugeirann og tengdar eða afleiddar greinar.

Hvernig eru verkefnin valin?

Horft verður á hversu markaðsvæn varan eða þjónustan er og metið hvaða erindi hún á fyrir hinn skilgreinda markhóp. Samsetning teymisins á bak við hugmyndina er einnig mikilvæg, þ.e. að nægileg breidd sé í hópnum til þess að hugmyndin geti orðið að veruleika.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Íslendingar búa yfir mikilli sérþekkingu og sérstöðu í orkuiðnaðinum. Það er mikilvægt að hlúa að umhverfi þar sem lítil fyrirtæki geta skapað verðmæti til framtíðar. Við viljum halda áfram á sömu braut með virkum stuðningi við íslenska frumkvöðla og athafnafólk. Arion banki hefur fjárfest í fyrirtækjum í þekkingariðnaði í gegnum Startup Reykjavík en nú er komið að fyrirtækjum tengdum orkuiðnaði í gegnum Startup Energy Reykjavík.“

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Við hjá Landsvirkjun erum ánægð með þátttöku okkar og samstarf í SER og bindum vonir við að verkefnið verði til þess að áhugaverðir kostir í orkunýtingu og orkuvinnslu verði þróaðir áfram hér á landi. SER gæti þannig leitt til aukinnar verðmætasköpunar fyrir íslenskt samfélag á næstu árum.“

Hjalti Páll Ingólfsson, framkvæmdastjóri GEORG:

„GEORG klasasamstarfið hefur að leiðarljósi aukna verðmætasköpun í gegnum rannsóknir og þróun. Það er okkur því mikil ánægja að taka þátt í SER með svona öflugt teymi og við hlökkum til að takast á við verkefnið framundan. Það eru gríðarleg tækifæri til vaxtar fyrir góðar hugmyndir tengdar jarðvarma og við höfum alla burði til að vera áfram leiðandi á því sviði.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira