15.06.2015
Startup Reykjavík 2015 farið af stað
Startup Reykjavík hófst í morgun, mánudaginn 15. júní, í fjórða sinn. Aðstaðan er í Borgartúni 20 á þriðju hæð. Næstu 10 vikur munu teymin vinna hörðum höndum og þróa sínar hugmyndir.
Mikill spenningur ríkir á meðal teymanna og er búist við miklu af þeim í ár. Umsóknir í Startup Reykjavík voru 140 í ár en að venju eru það 10 teymi sem voru valin til þátttöku.
Teymin eru:
Wasabi Iceland
Ætla að rækta hágæða wasabi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og endurnýjanlega orku.
Ludis
Munu nútímavæða borðspil þar sem síminn þinn er stjórntækið og sjónvarpið borðspilið.
Elsendia
Tengir saman rafræn skilríki og rafræna lyfseðla. Fólk getur keypt lyf á netinu með öruggum hætti og fengið sent heim.
Viking Cars
Markaðstorg þar sem bílaeigendur geta deilt bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti. Í raun eins og Airbnb nema fyrir bíla.
Datadrive
Hugbúnaður sem tekur við upplýsingum úr bílnum þínum og tengir beint við snjallsímann.
Spor í sandinn
Sjálfbær gróðurhús tengd sundlaug í hjarta borgarinnar bjóða upp á sölu staðbundinna matvæla og nýja upplifun í ferðaþjónustu fræðslu og afþreyingu.
Genki instruments
Þróa nýstárleg raftónlistarhljóðfæri sem tengja má saman með áður óséðum hætti.
Delphi
Nýta þekkingu fjöldans til þess að spá fyrir um tiltekna viðburði í framtíðinni.
Hún / Hann Brugghús
Framleiðir hágæða bjór úr besta fáanlega hráefni.
Floori
Hugbúnaður sem hjálpar kennurum að skilja og meta árangur nemenda með því að bjóða upp á krossaspurningar í gegnum vef og snjallsíma.