11.06.2012
Startup Reykjavík - fjárfest í sprotafyrirtækjum fyrir 20 milljónir
Verkefninu Startup Reykjavík verður hleypt af stokkunum fimmtudaginn 7. júní nk. Verkefnið snýst um að fjárfesta í sprotafyrirtækjum og jafnframt aðstoða þau við að koma viðskiptahugmynd sinni eins langt og mögulegt er á 10 vikum.
50 manna hópur margra helstu aðila viðskipta- og athafnalífsins munu leiðbeina teymunum jafnt og þétt á þessu 10 vikna tímabili.
Umsjónaraðilar verkefnisins eru Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur og Klak nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins í nánu samstarfi við Arion banka sem leggur m.a. til hlutafé í sprotafyrirtækin, kostun á rekstri verkefnisins og vinnuaðstöðu. Startup Reykjavík er gert að erlendri fyrirmynd og er haldið í fyrsta sinn á Íslandi nú í sumar.
Startup Reykjavík er hluti af tengslaneti Global Accelerator Network þar sem viðskiptateymin fá:
2 milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn hlutdeild í fyrirtækinu
10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá einstaklingum víðs vegar úr atvinnulífinu og starfsfólki Innovit og Klaks
Sameiginlega aðstöðu allra viðskiptateyma
Aðgang að tengslaneti Global Accelerator Network
Að kynna sig fyrir fjárfestum á lokadegi Startup Reykjavík
Startup Reykjavík stendur yfir frá 11. júní - 17. ágúst 2012.
Automatic 3D - Tölvusýn notuð til framleiðslu á nákvæmum þrívíddarmódelum með notkun á venjulegum ljósmyndum. Samband: Ólafur Haraldsson info@olihar.com 847-0335
Cloud Engineering - Cloud Engineering hannar lausnir í upplýsingaröflum. Við þróum vefhugbúnað sem umbyltir hvernig hægt er að safna upplýsingum á netinu. Samband: Arnar Laufdal Ólafsson info@cloudengineering.is 897-0915
Guitarparty.com - GuitarParty gerir tónlistar áhugafólki mögulegt að læra uppáhalds lögin sín með þægilegu notendaviðmóti, söngbókum og kennslumyndböndum. Samband: Kjartan Sverrisson kjartan@guitarparty.com 897-2099
Heilsufar - Heilsufarsbanki einstaklinga. Öll gögn um þína heilsu hollustu og hreyfingu á einum stað. Samband: Rúnar Júlíusson runar@heilsufar.is 895-6520
Live Shuttle - Live Shuttle er ókeypis þjónusta þar sem að snjallsíma eigendur geta deilt lífi sínu í rauntíma með vinum og fjölskyldu. Samband: Erling Gudjonsen erling@liveshuttle.com 846-7536
Radiant Games – Radiant mun hanna og smíða skemmtilega, frumlega leiki og tól til að mennta börn. Samband: Haukur Steinn Logason, haukurstlo@gmail.com 661-6114
RemindMe - Um er að ræða sjálfvirkan og læsanlegan lyfjaskammtara sem stuðlar að markvissari lyfjameðferð. Sigurvegarar Gulleggsins 2012. Samband: Ingunn Ýr Guðbrandsdóttir ingunn.gudbrandsdottir@gmail.com 615-1346
Startup Ville - Félagslegur leikur þar sem fjárfestar gera raunverulegar fjárfestingar í sprotafyrirtækjum. Samband (á ensku): Ashwin Bhambri startupville@gmail.com
Stream Tags - Horfðu á kvikmyndir á vefnum með vinum í vefmyndavél. Nú hefurðu upplýsingar um allt sem þú sérð eða heyrir á skjánum og getur keypt það. Samband: Óskar Örn Arnarson oskarinn@gmail.com 696-1895
When Gone - Whengone er kerfi sem gerir fólki kleift að taka upp skilaboð/minningar fyrir ástvini sem er síðan komið áleiðis eftir að notandi fellur frá. Samband: Sveinn Kristjánsson sveinn@whengone.com 862-3120