07.03.2013

Startup Reykja­vík hald­ið í ann­að sinn - op­ið fyrir um­sóknir

Byrjað er að taka á móti umsóknum í viðskiptasmiðjuna Startup Reykjavík fyrir árið 2013. Tíu fyrirtæki verða valin úr hópi umsækjenda og mun Arion banki fjárfesta í hverju þeirra fyrir 2.000.000 króna gegn 6% eignarhlut. Auk þess munu fyrirtækin fá aðgang að sameiginlegri skrifstofuaðstöðu í þær 10 vikur sem prógrammið stendur yfir og njóta leiðsagnar yfir 50 leiðbeinenda (e. mentor) sem allir búa yfir víðtækri reynslu úr háskóla- eða atvinnulífinu.

Um Startup Reykjavík

Startup Reykjavík fór fyrst fram síðastliðið sumar. Markmið Startup Reykjavík er að skapa umgjörð þar sem frumkvöðlar njóta ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vör nýjum viðskiptatækifærum. Startup Reykjavík verkefnið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi en verkefni sem þessi hafa notið mikilla vinsælda og virðingar víðs vegar um heim hjá fjárfestum og fyrirtækjum sem eru að stíga sín fyrstu skref.

90 milljónir úr Tækniþróunarsjóði til Startup Reykjavík fyrirtækja

Fjögur fyrirtæki sem fóru í gegnum Startup Reykjavík í fyrra sóttu um styrki úr Tækniþróunarsjóði og fengu þau öll styrki sem samanlagt námu 90 milljónum króna. Þetta voru fyrirtækin When Gone (2 ár x 5 m.kr.), Designing Reality (2 ár x 10 m.kr.), Eski Tech (3 ár x 10 m.kr.) og Cloud Engineering (3 x 10 m.kr.). Þetta eru afar ánægjulegar fréttir og jákvætt að sjá hvernig samspil einkafjármagns er við opinbert fé í þessu tilfelli.

Umsjón og utanumhald

Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og nýsköpunar- og frumkvöðlasetranna Innovit og Klaks. Arion banki leggur til fjármagn og aðstöðu en umsjón prógrammsins er í höndum starfsmanna Innovit og Klaks. Startup Reykjavík er hluti af Global Accelerator Network, sem er alþjóðlegur hluti starfsemi Techstars í Bandaríkjunum. Samstarfið við Global Accelerator Network felur í sér tækifæri fyrir ung fyrirtæki til að kynna viðskiptahugmyndir fyrir erlendum aðilum bæði hvað varðar þróun sinna hugmynda og mögulega framtíðarfjármögnun.

Leiðbeinandi ársins 2012 er sjálf frumkvöðull

Í fyrra voru á sjötta tug leiðbeinenda þátttakendum Startup Reykjavík innan handar. Í síðustu viku var Helga Waage, tækniþróunarstjóri Mobilitus, kosin besti leiðbeinandinn af þátttakendum Startup Reykjavík en hún er ekki í ósvipuðum sporum og þeir að ýmsu leyti. Helga býr í Portland í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni sínum en saman reka þau fyrirtækið Mobilitus sem tryggði sér þátttökurétt í prógramminu Portland Seed Fund sem aðstoðar sprotafyrirtæki við fjármögnun, markaðssetningu og þróun, ekki ósvipað Startup Reykjavík á Íslandi.

„Nýsköpun er mikilvægasti þátturinn í þróun þekkingarsamfélagsins. Nýsköpun er þó vandasöm og mikilvægt að hlúa að umhverfi fyrir frumkvöðla þar sem þeir geta lært hver af öðrum, fengið hvatningu, veitt stuðning og fengið fjármagn til að koma hugmyndum sínum á legg. Það var því afar ánægjulegt þegar viðskiptasmiðjan Startup Reykjavík fór af stað síðasta sumar.

Að hitta nýja frumkvöðla var afar skemmtilegt og fylgjast síðan með þeim taka hugmyndir sínar og móta þær í vörur. Í lok sumars var síðan frábært að sjá þessa nýju vini kynna verkefnin sín fyrir fullu húsi fjárfesta og annarra áhrifamanna í frumkvöðlaumhverfinu. Það var mér mikill heiður að vera valin mentor ársins hjá þátttakendum í Startup Reykjavík. Það er gefandi að fá tækifæri að vinna með fólki sem setur ástríðu í að gera hugmyndir sínar að veruleika. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að gera það.“

Mikilvægar dagsetningar

Kynningarfundur verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni 19 þriðjudaginn 12. mars og hefst fundurinn kl. 17:30. Fundurinn er öllum opinn og við hvetjum sem flesta til að koma og kynna sér málið.

Startup Reykjavík hefst þann 18. júní og lýkur með svokölluðum fjárfestadegi þann 23. ágúst.

Umsóknarfrestur rennur út þann 27. mars og hægt er að sækja um á heimasíðu Startup Reykjavík.

Meðfylgjandi eru þrjár myndir úr starfi Startup Reykjavík frá árinu 2012.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira