13.08.2014

Startup Reykja­vík – Síð­asta fimmtu­dags­grill sumarsins

Fimmtudaginn 14. ágúst frá kl. 17-19 verður þriðja og síðasta fimmtudagsgrill sumarsins í Startup Reykjavík haldið.

Fimm af teymunum tíu sem taka þátt í ár munu kynna hugmyndir sínar stuttlega fyrir gestum en að því loknu verður boðið upp á grillaða hamborgara, pylsur og meðlæti. Sérstakir grillmeistarar munu standa við grillið og grilla kræsingarnar ofan í gesti og gangandi. Þetta er fullkomið tækifæri til að kynnast fyrirtækjunum í Startup Reykjavík og að kynnast því sem er að gerast í íslensku frumkvöðlaumhverfi.
Startup Reykjavík er á 2. hæð í húsnæði Arion banka á Hlemmi, gengið inn að aftanverðu.

Startup Reykjavik er viðskiptahraðall (e. business accelerator) sem árlega fjárfestir í 10 viðskiptahugmyndum. Markmiðið er að skapa umgjörð þar sem þátttakendur njóta ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vör nýjum viðskiptahugmydum. Startup Reykjavik er samstarfsverkefni Arion banka og Klak Innovit.

Tíu fyrirtæki eru valin úr hópi umsækjenda og mun Arion banki fjárfesta í hverju þeirra fyrir tvær milljónir gegn 6% eignarhlut.

Að auki fá þátttakendur:

  • 2.000.000 í fjárfestingu fyrir 6% eignarhlut

  • Sameiginlegt skrifstofurými í 10 vikur

  • Ráðgjöf frá meira en 50 leiðbeinendum (mentors)

  • Leiðsögn og aðstoð við að byggja upp viðskiptahugmynd

  • Endurgjöf á viðskiptamódel fyrirtækisins

  • Aðgang að fjölda viðburða til að virkja tengslanetið

  • Tækifæri til þess að kynna viðskiptahugmyndina fyrir fjárfestum

Allir eru velkomnir á viðburðinn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira