28.05.2015

Startup Reykja­vik val­inn besti viðskipta­hraðall Norður­landa

Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík hlaut í gær viðurkenningu Nordic Startup Awards sem besti viðskiptahraðall Norðurlanda. Í dómnefnd voru um tuttugu einstaklingar hvaðanæfa að úr heiminum úr röðum virtra frumkvöðla, fjárfesta, stjórnenda og annarra sérfræðinga. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, á sæti í dómnefnd fyrir hönd Íslands.

Það eru Arion banki og Klak Innovit sem standa að Startup Reykjavík sem fór fyrst fram árið 2012 og mun fara fram í fjórða sinn nú í sumar. Arion banki hefur fjárfest í þrjátíu sprotafyrirtækjum í gegnum Startup Reykjavík á síðustu þremur árum og leggur viðskiptahraðlinum jafnframt til fjármagn og aðstöðu. Klak Innovit sér um framkvæmd verkefnisins.

Meðal verkefna sem hafa tekið þátt í Startup Reykjavík eru Zalibuna, Activity Stream, Herberia, Mure VR, CrowbarProtein, SuitMe og Þoran Distillery.

Hvert ár er teymunum tíu sem valin eru til þátttöku lagt eftirfarandi til:

  • 2 milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu

  • 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá mentorum víðs vegar að úr atvinnulífinu

  • Sameiginleg aðstaða allra viðskiptateymanna

  • Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira