29.11.2012

Startup Reykja­vík verk­efni styrkt af Tækni­þró­unar­sjóði

Startup Reykjavík er viðskiptasmiðja sem Arion banki ásamt Innovit og Klak stóð fyrir síðastliðið sumar. Þar fengu 10 viðskiptateymi sprotafjármögnun frá Arion banka í formi hlutafjár auk leiðsagnar og ráðgjafar frá yfir 50 einstaklingum úr viðskipta- og háskólasamfélaginu.

Fjögur fyrirtæki sem tóku þátt í Startup Reykjavík í sumar sóttu um styrk til Tækniþróunarsjóðs nýverið og fengu þau öll úthlutað styrk úr sjóðnum og boð um að ganga til samninga við Tækniþróunarsjóð. Þrjú fyrirtækjanna fengu úthlutað verkefnastyrk, en þau eru Cloud Engineering, Designing reality og Eskitech. Fyrirtækið When Gone fékk frumherjastyrk. Ekki liggur fyrir hver endanleg upphæð styrkjanna verður en að öllu jöfnu eru verkefnastyrkir um 10 milljónir króna á ári en frumherjastyrkir um 5 milljónir króna. Fyrirtækin sóttu ýmist um styrk til tveggja eða þriggja ára.

Það er sérstaklega mikilvægt um þessar mundir að hér á landi sé starfrækt gróskumikið frumkvöðlaumhverfi. Startup Reykjavík, sem mun næst fara fram sumarið 2013, er liður í þeirri uppbyggingu. Tækniþróunarsjóður hefur samkvæmt fjárlögum 2011 yfir að ráða 725 milljónum til að styrkja nýsköpunarverkefni. Styrkveiting verkefnanna fjögurra er gott dæmi um hvernig fjárfesting einkaaðila og styrkjaumhverfi hins opinbera geta unnið saman að framþróun góðra hugmynda. Í sameiningu stuðlar það að betra fyrirtækja- og frumkvöðlaumhverfi.

Arion banki er afar stoltur af því að hafa lagt fyrirtækjunum í Startup Reykjavík til hlutafé og í samvinnu við mentora og Innovit og Klak veitt fyrirtækjunum uppbyggjandi ráðgjöf og leiðsögn.

„Fyrir fyrirtæki einsog okkur hjálpar þessi frumherjastyrkur virkilega mikið. Þetta er annarsvegar heilmikil viðurkenning og hinsvegar fjármagn sem hjálpar okkur að þróa kerfið lengra og undirbúa fyrir alþjóðlega dreifingu. Við hefðum ekki verið komin á þennan stað án Startup Reykjavík.“

Sveinn Kristjánsson, When Gone ehf.

„Startup Reykjavík hjálpaði okkur í Cloud Engineering alveg gífurlega, þar hófum við fyrir alvöru þróun á vörunni okkar og því má segja að Startup Reykjavík hafi lagt grunninn að styrkveitingunni sem við fengum svo frá Tækniþróunarsjóði.“

Arnar Laufdal, Cloud Engineering ehf.

„Startup Reykjavík veitti mér tækifæri til þess að einbeita mér að verkefni og hugmynd sem ég hafði unnið að í 3 ár. Loksins setjast niður og fara í gegnum hvað það var sem ég ætlaði og hvert verkefnið ætti að fara. Designing Reality væri ekki til í dag ef það hefði ekki verið fyrir Startup Reykjavík og verður sá styrkur sem sótt var eftir og samþykktur hjá Rannís vel nýttur í frekari vöxt fyrirtækisins.“

Ólafur Haraldsson - Designing Reality ehf.

„Startup Reykjavík hjálpaði okkur í Eski Tech að komast hratt af stað með verkefnið okkar, við hefðum líklegast ekki verið í aðstöðu til þess að sækja um styrk frá Tækniþróunarsjóði nema vegna þess að við gátum einbeitt okkur að vinnunni að verkefninu af fullum krafti í sumar. Þátttakan í Startup Reykjavík styrkti umsóknina okkar til Tækniþróunarsjóðs m.a. vegna allra þeirra einstaklinga sem við höfðum aðgang að í gegnum starfsemi Startup Reykjavík.“
Vaka Valsdóttir, Eski Tech ehf.

„Það er afar ánægjulegt að sjá að fjögur fyrirtæki sem tóku þátt í StartupReykjavík fái nú áframhaldandi fjárhagsstuðning frá Tækniþróunarsjóði til áframhaldi rannsóknar og þróunarstarfs. Það er vönduð yfirferð á umsóknum sem berast til sjóðsins og teljum við sem stöndum að Startup Reykjavík það vera ákveðin gæðastimpill að fjögur af okkar fyrirtækjum í sumar komist í gegnum matsferli sjóðsins í fyrstu atrennu.“

Kristján Freyr Kristjánsson, Innovit.

„Með tilkomu Startup Reykjavík er komið til móts við þarfir sprotafyrirtækja um fjármögnun og mikla aðstoð á fyrstu skrefunum. Að öll fjögur fyrirtækin sem sóttu um hjá Tækniþróunarsjóði fái styrk er góð vísbending um að vel hafi verið að verki staðið. Samspil einkafjármagns og opinbers er hér að virka með góðum hætti.“

Einar Gunnar Guðmundsson, Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira