24.11.2009
Stefnir hf. - nýtt heiti á stærsta sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. hefur fengið nýtt heiti, Stefnir hf. Stefnir er dótturfélag Arion banka og starfrækir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði. Félagið er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki og um starfsemi þess gilda skýrar reglur um aðskilnað reksturs frá rekstri móðurfélags. Með nýju nafni vilja stjórnendur Arion banka og Stefnis undirstrika sjálfstæði félagsins og þann aðskilnað sem verið hefur í reynd á milli dótturfélags og móður-félags.
Stefnir er hljómfagurt orð sem skírskotar til ýmiss konar jákvæðra tákna og eiginleika. Í íslenskri þjóðtrú kemur orðið „stefnir“ fyrir sem heiti á náttúrusteini sem notaður var sem verndargripur. Orðið tengist að líkindum stafni skips. Það ber með sér stefnufestu og marksækni og í nafninu býr skírskotun til brautryðjanda, forystu og vinnusemi. Undir þessum merkjum vill Stefnir starfa.
Nafnabreytingin verður kynnt viðskiptavinum á næstu dögum.
Stefnir er stærsta sérhæfða sjóðastýringarfyrirtæki hér á landi með 13 starfsmenn. Virkar eignir í stýringu eru um 250 milljarðar króna. Viðskiptavinir Stefnis eru 20.000 fyrirtæki, stofnanir, lífeyrissjóðir og einstaklingar. Arion banki er söluaðili sjóða Stefnis.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um sjóði Stefnis á www.arionbanki.is/sjodir og hjá ráðgjöf Arion banka í síma 444 7000.
Nánari upplýsingar veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7464.