15.03.2010
Stjórn Kaupskila kjörin
Kaupþing hf. hefur kosið nýja stjórn Kaupskila ehf., sem er eignarhaldsfélag Kaupþings og fer með eignarhald á hlut Kaupþings hf. í Arion banka. Stjórnina skipa Jónína A. Sanders, Knútur Þórhallsson og Reynir Karlsson, sem jafnframt er formaður stjórnarinnar. Í samræmi við leyfi sem FME veitti 11. janúar sl. er meirihluti stjórnar óháður Kaupþingi, stórum kröfuhöfum og Arion banka, þ.m.t. stjórnarformaðurinn.