11.07.2012
Stofnun Arion banka í samræmi við reglur EES
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur komist að þeirri niðurstöðu að ráðstafanir sem gripið var til við stofnun Arion banka haustið 2008 séu í samræmi við reglur EES-samningsins um ríkisstyrki. Arion banki fagnar því að niðurstaða sé nú komin í þetta mál, en niðurstaðan veitir bankanum tækifæri til að einbeita sér enn frekar að rekstri sínum í nútið og framtíð.
Í ákvörðun ESA kemur fram að bankinn búi nú við sterka eiginfjárstöðu og hafi náð árangri varðandi endurskipulagningu lána skuldsettra viðskiptavina sinna.
Í tengslum við ákvörðun þessa hefur Arion banki tekið á sig nokkrar skuldbindingar. Bankinn hefur þannig skuldbundið sig til að selja áfram eignarhluti í fyrirtækjum sem hann hefur tekið yfir. Þá mun bankinn gera ákveðnar ráðstafanir til að auka samkeppni, meðal annars veita upplýsingar á vefsíðu sinni um hvernig skipta megi um viðskiptabanka. Ennfremur hefur Arion banki skuldbundið sig til að eignast ekki önnur fjármálafyrirtæki í tiltekinn tíma nema með samþykki ESA.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri:
„Niðurstaða ESA er mikilvægur áfangi fyrir bankann. Allt frá stofnun hefur mikil áhersla verið lögð á hagræðingu í rekstri, að þjóna viðskiptavinum bankans og að styrkja alla innviði og stjórnarhætti í bankanum. Fjárhagslegur styrkur bankans er góður og grunnrekstur stöðugur. Niðurstaðan er jákvæð og er enn einn áfanginn í að eyða óvissu í starfsumhverfi bankans.“