19.02.2013
Stórviðburður í íslensku skáklífi í Arion banka
Síðastliðna helgi var haldin landskeppni í skák milli Íslands og Kína í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni 19. Kínverjar eru þriðja besta skákþjóð heims og hafa framfarir þeirra á skáksviðinu undanfarin ár verið með ólíkindum. Lið Kínverja var skipað ofurstórmeisturum, skákdrottningum og undrabörnum en yngsti liðsmaður Kínverja var hinn 13 ára gamli Wei Yi, tvöfaldur stórmeistari og yngsti alþjóðameistari í heimi. Aðrir liðsmenn kínverska liðsins voru honum ekki síðri en meðalaldur kínverska liðsins var tæp 20 ár. Íslenska liðið var skipað stórmeisturum, alþjóðlegum meisturum og sumum efnilegustu ungmennum landsins.
Alls voru 72 skákir tefldar og var umhugsunartími 20 mínútur á skák. Spilað var báða dagana frá kl. 13 til kl. 17. Mótinu lauk með sigri Kínverja með 47,5 vinningum gegn 24,5 vinningum en bestum árangri Íslendinga náði Hjörvar Steinn Grétarsson með 5,5 af 12 mögulegum. Jón L. Árnason, starfsmaður Arion banka, afhenti öllum keppendum sem og sendiherra Kína gjafir en Jón varð heimsmeistari unglinga í skák árið 1977, fyrstur Íslendinga.
Skáksamband Íslands (SÍ) og Kínversk-íslenska menningarfélagið (KÍM) stóðu að landskeppninni í samvinnu við Skáksamband Kína með stuðningi Arion banka, CCP, Promens, Icelandic og Elkem Ísland. Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka ávarpaði gesti og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lék fyrsta leikinn fyrir Íslands hönd. Heppnaðist mótið með eindæmum vel og höfðu allir gaman að.
Inn á milli keppenda leyndust áhugaverðir listmunir sem tengdust listsýningu sem opnuð verður í höfuðstöðvum Arion banka laugardaginn næstkomandi, þann 23. febrúar. Sýningin ber yfirskriftina Nokkrar skákir úr íslenskri myndlist. Þar verður meðal annars að finna gömlu taflmennina sem áður prýddu útitaflborðið við Lækjargötu auk fleiri listmuna tengdum skák. Jón Proppé listfræðingur mun halda listafyrirlestur í Borgartúni 19 við opnun sýningarinnar kl. 13:30 og eru allir velkomnir.