19.01.2012
Strákarnir okkar skemmtu sér vel við áritun
Síðastliðinn föstudag bauð Arion banki landsmönnum á vináttuleik íslenska landsliðsins í handbolta við Finna í Laugardalshöll þar sem strákarnir sýndu og sönnuðu að föstudagurinn þrettándi er enginn óhappadagur, í það minnsta ekki hjá íslenska handboltalandsliðinu.
Að leik loknum tóku strákarnir galvaskir á móti aðdáendum sínum í andyri hallarinnar og árituðu plaköt. Það fóru því flestir heim af leiknum með bros á vör og margir einnig plakatinu ríkari.
Eins og sjá má á myndunum höfðu strákarnir ekki síður gaman af því að árita plaköt fyrir dygga aðdáendur sína en að baka Finnana í handbolta.