27.03.2014
Sýning á verkum Guðmundu Andrésdóttur í Arion banka
Laugardaginn 29. mars verður opnuð sýning á verkum Guðmundu Andrésdóttur (1922-2002) í höfðustöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Sýningin opnar klukkan 13:30 með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur myndlistarkonu og prófessors við Listaháskóla Íslands. Fyrirlesturinn nefnir Hulda „Essens og ástríða“ og fjallar hann um listakonuna Guðmundu Andrésdóttur og verk hennar.
Guðmunda var meðal brautryðjenda í listsköpun kvenna á miklum umbrotatímum í íslensku þjóðfélagi. Hún var í þeim stóra hópi íslenskra listamanna sem dvöldu í París á fimmta og sjötta áratugnum sem drukku í sig menningarstrauma eftirstríðsáranna í Evrópu og mótuðu síðan menningarlíf á Íslandi á síðari hluta tuttugustu aldar með áberandi hætti.