27.05.2015

Það er ekki allt mælt í peningum - ráð­stefna í Arion banka

Ísland er í 4. sæti á lista 133 þjóða þar sem hin svokallað SPI vísitala er mæld. Þrátt fyrir góðan árangur eru blikur á lofti og ekki sjálfgefið að Ísland eigi fastan sess meðal fremstu þjóða í þessum mælingum.

SPI vísitalan (Social Progress Index) er mat á samfélagslegum innviðum þar sem eingöngu er tekið tillit til samfélagslegra þátta en ekki hagrænna eins og almennt er gert þegar verið er að meta frammistöðu ríkja. Hér er því í raun verið að kynna nýja nálgun á samkeppnishæfi þjóða.

Næstkomandi fimmtudag, 28. maí, verður haldin ráðstefna í Borgartúni 19 um málefnið frá kl. 15.00 – 18.00.

Ráðstefnan er haldin á vegum Gekon í samstarfi við Arion banka og Deloitte. Meðal þeirra sem koma fram eru Michael Green, ritstjóri og forstöðumaður Social Progress Imperative á heimsvísu, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands. Sjá nánar um dagskrá og upplýsingar um skráningu hér.

Þess má geta að Michel Porter, prófessor við Harvard og einn fremsti frumkvöðull á sviði stefnumótunar í heiminum í dag, er upphafsmaður SPI vísitölunnar.

Um SPI

SPI vísitalan byggir á þremur lykilþáttum:

  1. Grunnþarfir einstaklingsins
    Er viðkomandi samfélag að sjá um að grunninnviðir þess séu ásættanlegir?
       a. Grunnheilbrigðisþjónustu og almenn næring
       b. Aðgangur að vatni og hreinlætisaðstæður
       c. Húsaskjól
       d. Öryggi borgaranna

  2. Grunnur að vellíðan einstaklingsins
    Eru aðstæður í samfélaginu með þeim hætti að einstaklingar og fyrirtæki/sveitarfélög geti gengið að og viðhaldið velferð?
       a. Aðgangur að grunnmenntun
       b. Aðgengi að upplýsingum og samskiptamöguleikar
       c. Heilsa og almenn líðan
       d. Sjálfbærni og umhverfisþættir

  3. Tækifæri einstaklingsins
    Eru fyrir hendi tækifæri fyrir einstaklinga að nýta hæfileika sína og getu til árangurs
       a. Mannréttindi
       b. Skoðanafrelsi
       c. Umburðarlyndi samfélagsins
       d. Aðgangur að framhaldsmenntun

Nánari upplýsingar um stöðu Íslands og upplýsingar um vísitöluna má finna hér fyrir neðan:

Iceland
Executive summary

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira