11.11.2009
Þakkir frá Rauða krossinum
Kristján Sturluson framkvæmdastjóri Rauða krossins kom í höfuðstöðvar bankans í dag og þakkaði Finni Sveinbjörnssyni bankastjóra formlega fyrir framlag bankans til Liðsaukaverkefnisins.
Alls skráðu um þúsund manns sig í verkefnið hjá Rauða krossinum og af þeim voru tæplega tvö hundruð starfsmenn Nýja Kaupþings.
Kristján Sturluson sagði við þetta tækifæri að framlag starfsfólks og bankans væri ómetanlegt. Finnur tók við þakkarskildi frá Rauða krossinum af þessu tilefni. Verkið er til sýnis í móttöku bankans í Borgartúni.