11.08.2009
Þú getur valið - Rafræn yfirlit eða pappír
Viðskiptavinir Nýja Kaupþings sem eru með netbanka fá öll yfirlit hjá bankanum send rafrænt til sín. Þetta getur sparað þúsundir króna árlega í sendingar- og pappírskostnað. Öll yfirlit eru geymd í netbankanum í 7 ár. Þeir sem eru ekki með netbanka fá yfirlit send áfram í pappírsformi. Þeir geta valið að afpanta pappír. Viðskiptavinir fá í lok árs frítt reikningsyfirlit hvort sem það er sent í pappírsformi eða rafrænt í netbanka.
Viðskiptavinir geta valið um að fá reikningsútskrift í pósti eða á rafrænu formi, allt frá daglega upp í árlega. Óski viðskiptavinur eftir að fá útskrift oftar en einu sinni á ári, greiðir hann kr. 45,- fyrir rafrænt yfirlit en kr. 95,- fyrir pappírsyfirlit.
Þá geta viðskiptavinir bankans einnig sparað sér sendingar- og pappírskostnað með því að afpanta pappírsyfirlit fyrir kreditkort, lífeyrir og greiðsluseðla.
Gjaldfrjálst er að skoða hreyfingar á reikningum hvenær sem er í Netbankanum.
Framtakið er liður í þeirri stefnu Nýja Kaupþings að vera umhverfisvænn banki um leið og þetta er til mikils hagræðis og sparnaðar fyrir viðskiptavini bankans.