20.07.2009

Tilkynning til viðskipta­vina vegna samnings um fjármögnun Nýja Kaupþings

Nýja Kaupþing fagnar því að nú skuli stigin lokaskrefin í stofnun bankans. Með þessu móti teljum við okkur verða kleift að koma enn frekar til móts við þarfir viðskiptavina okkar. Nýja Kaupþing hefur einbeitt sér að því að viðhalda bankaþjónustu hér á landi eftir hrun bankakerfisins í október síðastliðnum og vinna með viðskiptavinum sínum í kjölfar efnahagshrunsins.

Með fjármögnuninni hefur verið skotið sterkum fótum undir rekstur bankans og lausafjárstaða hans og eiginfjárhlutfall eru traust. Með þessum samningi lýkur uppgjöri á milli ríkisins og skilanefndar Kaupþings á þeim eignum og skuldum sem færðar voru yfir til Nýja Kaupþings síðastliðið haust. Í samningum felst að hagsmunir erlendra aðila fara nú saman við velgengni bankans sem rennir styrkari stoðum undir rekstur hans. Við bindum einnig vonir við að með þessu samkomulagi takist bankanum að vinna í aukinni sátt á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, sérstaklega ef erlendir aðilar sjá sér hag í velgengni bankans.

Nýja Kaupþing verður áfram íslenskur banki og mun áfram starfa eftir íslenskum lögum og reglum og undir eftirliti íslenskra eftirlitsaðila. Innstæðutrygging íslenskra stjórnvalda mun ná jafnt til Nýja Kaupþings sem og annarra innlendra innlánastofnanna. Lög og reglur sem íslensk stjórnvöld setja um fjármálafyrirtæki, til dæmis um rétt neytenda munu jafnt eiga við um Nýja Kaupþing sem og önnur innlend fjármálafyrirtæki.

Bankanum verður skipuð stjórn af hluthöfum sínum sem fer með æðsta vald á milli hluthafafunda og mun skilanefnd fara með hluti Kaupþings í Nýja Kaupþingi. Kröfuhafar Kaupþings verða ekki beinir eigendur að Nýja Kaupþingi og munu því ekki hafa bein ítök í rekstri bankans en tenging við erlenda banka mun án efa hjálpa til við að endurbyggja traust á íslenskum bankastofnunum. Íslenska ríkið mun áfram eiga fulltrúa í stjórn Nýja Kaupþings.

Viðskiptavinir bankans munu ekki verða fyrir truflunum í sínum daglegu viðskiptum vegna breytinga á eignarhaldi, en fjárhagslega sterkur og traustur banki verður betur í stakk búinn að liðsinna þeim í endurreisn efnahagslífsins.

Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, segir um samning um fjármögnun bankans: „Þessi samningur eyðir þeirri óvissu sem hefur verið um fjármögnun bankans og tryggir honum sterkt eiginfjárhlutfall og góða lausafjárstöðu. Staða viðskiptavina breytist ekki með neinum hætti með hugsanlegri tilkomu nýrra eigenda. Nýja Kaupþing hefur sett sér það markmið að verða leiðandi í fjármálaþjónustu við íslensk heimili og fyrirtæki. Ég lít á þennan samning sem góða viðurkenningu á því mikla og oft erfiða starfi sem unnið hefur verið innan bankans til að aðstoða fyrirtæki og heimili í endurreisninni.“

Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, segir um samninginginn ,,Við teljum mikil verðmæti fólgin í starfsemi Nýja Kaupþings á Íslandi og viljum efla starfsemina enn frekar. Þrátt fyrir stöðu sína er Kaupþing sterkur bakhjarl með góða lausafjárstöðu og getur nýtt reynslu sína af rekstri á eignum eins og FIH í rekstri á Nýja Kaupþingi. Jafnframt eru í hópi kröfuhafa m.a. stór og öflug alþjóðleg fjármálafyrirtæki sem eflir tengsl Nýja Kaupþings við erlenda banka."

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira